Gefðu Jóga Þerapíu til þeirra sem þér þykir vænt um.
Jóga Þerapía er einstaklega góð til að viðhalda langtíma hreyfigetu, sveigjanleika og fyrirbyggja sársauka. Jafnvel þegar við erum með líkamleg meiðsl þá hefur spenna, ótti og áhyggjur tilhneigingu til að safnast saman kringum veikasta hluta líkamans. Andlegar og tilfinningalegar blokkir stuðla að líkamlegu ójafnvægi. Jóga þerapían er hönnuð til að finna og losa um þessar spennur, koma í veg endurtekningar, bæta líkamsstöðu, auka hreyfigetu og draga úr langvarandi sársauka og spennu. Þessi meðferð er frábær til að endurbyggja líkamsstarfsemina til langs tíma og hindra að allt fari fljótlega í sama farið aftur.
Yoga Þerapíu meðferð - Gjafakort
Kinetic Chain Released (KCR) er hannað til að koma líkamanum í jafnvægi og laga líkamsstöðuna. Meiðsl eða röng líkamsstaða til langs tíma skapa vana í því hvernig vöðvarnir halda líkamsstöðunni, oft á þann hátt að það togar háls, hrygg og mjaðmagrind úr jafnvægi. Með fyrirfram ákveðinni röð af teygjum og hreyfingum hjálpum við líkamanum að komast í sitt náttúrulega vöðva- og stoðkerfisjafnvægi sem oft dregur úr aðstæðum sem valda verkjum og óþægindum. Ef um mjög langvarandi ástand er að ræða ráðlegg ég fimm skipti