top of page
kcr pain free work 8 .jpg

KCR level I námskeið

Á námskeiðinu er kennt 23 þrepa „Protocal“ sem kallast KCR Level 1, sem kemur líkamanum með undraverðum hætti á besta stað til að komast inní sitt eiginlega jafnvægi. Um leið falla burt verkir og vanlíðan sem jafnvel eru búið er að vera lengi.

KCR er einföld og hættulaus meðferð ef hún er gerð rétt. Markmið námskeiðsins er að kenna réttu handtökin svo fullkominn árangur náist. KCR meðferð er fyrir fólki á öllum aldri, allt frá ungabörnum til (h)eldri borgar. Meðferðin fer fram á nuddbekk.

Hugsjón Hugh Gilbert, stofnanda KCR, var að KCR væri fyrir alla og að í hverri fjölskyldu, íþróttafélagi, fyrirtæki... væri KCR í boði. Með hugsjón stofnandans að leiðarljósi er námskeiðskostnaðurinn hafður í lágmarki til að tryggja aðgengi fyrir alla.

Kinetic Chain Release, KCR, byggist á að fá vöðva, bandvef og sinar til að færa líkamsstöðu hvers og eins í eðlislægt jafnvægi og ástand.

Með fyrir fram ákveðinni röð af teygjum og hreyfingum hjálpar KCR meðferðin líkamanum að komast í sitt náttúrulega jafnvægi, jafnframt minnkar sársaukinn.

Námskeiðið tekur 14 klukkustundir og er kennt á tveimur dögum frá kl. 9 til 17 báða dagana.

Kennari er Skúli Sigurðsson sem lærði KCR árið 2011 og hefur notað meðferðina alla tíð síðan.

Staðsetning: Laugavegur, Reykjavík.

Allir sem hafa náð 16 ára aldir eru velkomnir á námskeiðið og engin sértæk reynsla eða menntun er nauðsynleg til að geta lært KCR meðferðina.

Námskeiðsgjaldið er kr. 84.000 og greiðist við skráningu eða eigi síðar en einum mánuði áður en námskeiðið hefst.

Námskeiðið felst í kennslu á KCR grunntækni sem gefur þátttakendum sem ljúka námskeiðinu leyfi til að nota KCR meðferðina og verða „KCR Practitioner“. Hægt er að bæta við stuttu ferli eftir námskeiðið til að verða „Accredited Practitioner“.

Upplýsingar um meðferðina er að finna á www.kineticchainrelease.com og https://www.kcracademy.com/.

 

bottom of page