
Yoga Therapy–Jóga Þerapía
Yoga Therapy–Jóga Þerapía
Heildræn meðferð sem sameinar líkama, huga og taugakerfi í bataferli
Jóga.Þerapía er einstaklings meðferð sem notar jógafræðin á markvissan og meðvitaðan hátt til að styðja líkama og huga í átt að jafnvægi, vellíðan og bættri líkamsstarfsemi. Þetta er djúp og endurnærandi meðferð sem hentar bæði þeim sem glíma við líkamleg meiðsl og sársauka, sem og þeim sem finna fyrir langvarandi spennu, andlegri þreytu eða streitu. Meðferðin samei nar mildar líkamsæfingar (asana), öndun (pranayama), hugleiðslu og líkamsvitund með það að markmiði að opna fyrir flæði, losa um spennu mynstur og styðja við náttúrulega hæfni líkamans til að koma sér í fullkomið jafnvægi. Þó líkaminn beri einkenni eins og stirðleika eða verki þá býr orsökin oft líka í ómeðvituðum tilfinningum, spennu, áhyggjum eða vantrausti sem hefur tekið sér bólfestu líkamanum. Jóga þerapía vinnur með rót þessara þátta, á öruggan og viðkvæman hátt.


Helstu áhrif Jóga Þerapíu:
Stuðlar að bættri líkamsstöðu, jafnvægi og hreyfigetu
Losar djúpa spennu sem safnast hefur fyrir í líkama og taugakerfi
Styður við taugakerfislega slökun og sjálfsvörnlíkamans
Hjálpar til við að draga úr langvarandi verkjum, stirðleika og streitu
Eykur tilfinningalega tengingu og meðvitund um líkamsvitund og innri líðan
Býður upp á leiðir til sjálfsumönnunar og fyrirbyggjandi heilsuræktar
Fyrir hvern er Jóga Þerapía?
Jógaþerapía hentar bæði þeim sem eru að jafna sig eftir meiðsli, slysa eða skurðaðgerðir og þeim sem finna fyrir endurteknum verkjum, krónískri spennu eða andlegri streitu sem hefur áhrif á líkamsstarfsemi. Hún er einnig einstaklega gagnleg fyrir þá sem vilja viðhalda heilbrigðri líkamsbeitingu, sveigjanleika og hreyfigetu til lengri tíma og koma í veg fyrir að vandamál snúi aftur.
Jafnvel þegar líkaminn virðist vera að jafna sig, getur spennan haldist í kerfinu sérstaklega í kringum þann hluta líkamans sem varð fyrir álagi. Jógaþerapía hjálpar til við að losa um þessar spennur, koma í veg fyrir að mynstur endurtaki sig og styðja líkamsstarfsemina í að byggjast upp af nýju, á heilbrigðari grunni.

Meðferðarlengd
Jóga Þerapía–90 mínútur
Róleg, djúp og öflug meðferð sem sameinar líkamlega, tilfinningalega og orkulega nálgun. Markmiðið er að skapa varanlega breytingu með skýrri og meðvitaðri nærveru, ekki aðeins lina einkenni tímabundið, heldur leiðbeina líkamanum að nýju jafnvægi sem varir.
Ef þú ert að leita að því að endurtengjast líkama þínum á heilandi hátt, byggja þig upp með virðingu og hlustun, þá býður jógaþerapía upp á öruggan og áhrifaríkan farveg til þess. Hún er ekki bara meðferð hún er vegferð inn á við sem gefur líkamlegum, andlegum og orkuþáttum tækifæri til að vinna saman í átt að bættri heilsu
